mánudagur, júní 04, 2007

Nýja fartölvan datt í gólfið um daginn og skjárinn brotnaði. Hún var keypt í gegnum vinnuna en ég var að klára að borga þriðju og síðustu greiðsluna um daginn en hins vegar ekki búinn að fá kvittunina og Árný samstarfskonan mín sem veit hvar kvittunin er hefur verið í kórferðalagi í útlandinu. Þannig að við höfum notað gömlu ógeðslega hægfara fartölvuna sem við keyptum 2002. En þar sem Hrafnhildur fer alltaf með hana í vinnuna á mánudögum vorum við Ísak alveg tölvulausir í dag sem gerði það að verkum að ég fékk ekki tölvupóst frá Sinfó um að hljómsveitarstjórinn kæmi ekki á kóræfingu í kvöld sem var sett á alveg sérstaklega fyrir hann. Ég var samt búinn að biðja Helgu Hauks að hringja í mig við fyrsta tækifæri og reyndi nokkrum sinnum að ná í hana í dag en fékk aldrei svar. Ég fór á hótelið og varð mjög hissa að hann væri ekki búinn að tékka inn og skrifaði skilaboð til hans um að hann ætti að hringja í mig ef hann vildi koma á æfingu. En það kom svo sem ekkert að sök þar sem við gátum bara æft enn betur. Ég er að hugsa um að segja Hljómeyki við og við að það sem að koma útlendur hljómsveitarstjóri á æfinguna þvi aldrei þessu vant voru eiginlega allir mættir á réttum tíma, búnir að stilla upp stólum og settu meira að segja nótnastatíf á mitt gólf. Ég hef ekki hugmynd hvernig þessir Carmen tónleikar eiga eftir að koma út en eitt er víst að kórinn kann orðið sína frönsku!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha, okkur veitti sko ekkert af þessari æfingu. Reyndar hugsa ég að við hefðum skipulagt hana, hljómsveitarstjóri eður ei, úr því við slepptum hvítasunnudeginum.

Verður spennandi að heyra á morgun.

Nafnlaus sagði...

Ég er búin að fyrirgefa frönskunni fyrir að vera svona erfið.....

Sjáumst á morgun :-)
Þóra Marteins