miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Skjótt skipast veður í lofti.
Þessi dvöl í Köben var ekki ferð til fjár og svo var ég að komast að því að í Stokkhólmi ætla þeir bara að kalla inn örfáa í prófið og ég er ekki þar á meðal. Þeir byggja val sitt á vídeóupptöku sem maður átti að senda inn af sjálfum sér að stjórna á tónleikum eða æfingu. Hefði ég verið í Gautaborg þá hefði ekki verið neitt vandamál að fá lánað Pro Musica og taka upp en ég átti ekki annarra kosta völ hérna en að nota kirkjukórinn sem hljómar ekkert sérlega vel á vídeóupptöku. Ég uppgötvaði þetta líka bara á síðustu stundu (þetta var ekki svona í fyrra) og gerði ekki ráð fyrir að þessi upptaka væri afgerandi hvort maður fengi að fara í prófið eða ekki.
Eins og ég var svekktur í fyrradag þegar ég sá að draumar mínir voru að verða að engu þá lifnaði yfir mér í gær þegar ég talaði við Anders Eby. Hann var ósáttur við þetta og ætlar að leyfa mér að þreyta inntökupróf í kórstjórnardeildina þó svo að umsóknarfresturinn sé liðinn. Það próf er eftir akkúrat 4 vikur. Gráðulega séð þá er þetta ennþá betra því þetta er svokallað diplom nám, þ.e. maður verður að hafa Mastersgráðu til að komast inn. Við verðum 10 sem sækjum um 2 pláss og þetta er tveggja ára nám. Það er ekkert gefið að ég komist inn. Ef þetta gengur ekki þá ætla ég í kórstjórnarnám í Uppsala sem er 10 einingar á önn þannig að maður getur unnið með. Það væri líka fínt, það er dáldið erfitt að þurfa að fara aftur á námslán.

Engin ummæli: